Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 22. ágúst 2016 22:29
Alexander Freyr Tamimi
Gregg Ryder: Vil ekki hljóma eins og biluð plata
Illa gengur hjá Gregg og félögum.
Illa gengur hjá Gregg og félögum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, mætti enn og aftur svekktur í viðtöl eftir 4-0 tap sinna manna gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld.

Þróttarar sýndu mikla baráttu í fyrri hálfleik en gáfu eftir þegar þeir lentu 2-0 undir. Liðið er svo gott sem fallið, níu stigum frá öruggu sæti og klukkan tifar.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  4 Valur

„Ég vil ekki hljóma eins og biluð plata og segja alltaf það sama hérna, en þetta voru svekkjandi úrslit," sagði Gregg eftir leikinn.

„Í hreinskilni sagt fannst mér þeir skora í hvert skipti sem þeir fóru fram, við gátum ekki varist almennilega. Í hvert skipti sem við fórum fram og áttum skot, þá var varið. Maður vinnur ekki þannig leiki."

„Þetta er allt saman mjög erfitt, mér þykir þetta mjög fyrir hönd stuðningsmannanna sem þurfa að mæta og horfa á þetta. Þetta eru erfiðar aðstæður en við þurfum bara að halda áfram því sem við getum gert."


Ég veit að þegar maður tapar 4-0 á heimavelli er mjög erfitt að taka eitthvað jákvætt úr þessu en það eru enn stig í þessu og ég mun leggja hart að mér til að við tökum eins mörg stig og við getum."

Gregg telur að hæfileikarnir séu til staðar í sínu liði en það vanti upp á andlegu hliðina.

„Við erum klárlega með leikmenn sem geta verið í efstu deild og ég held að þetta sé ekki spurning um hæfileika, frekar andlegu hliðina. Þeir þurfa að koma hausnum í dag, þetta hefur ekkert með hæfileika að gera heldur trúna."
Athugasemdir
banner
banner
banner