Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis var langt frá því að vera sáttur með sína menn eftir 0-3 tap á heimavelli gegn ÍA í 16.umferð Pepsi deildar karla.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 3 ÍA
„Það eru fáir jákvæðir punktar, eða jú við vorum betri en þeir í hornum," sagði Hermann við Fótbolta.net.
„Þetta var dofið og dasað það var bara enginn kraftur í neinu."
„Það er nóg eftir og fullt af stigum í pottinum og þetta þarna var ekkert annað en bara að við misstum af góðu tækifæri til að taka þrjú stig."
Spurður út í Ásgeir Börk sagði Hemmi eftirfarandi:
„Hann kom allavega inná og barðist og honum langaði þetta. Hann gerði sjálfum sér mikinn greiða hér í dag."
Nánar er rætt við Hemma hér fyrir ofan.
Athugasemdir