Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 22. ágúst 2016 12:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd lánar Borthwick-Jackson til Wolves (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Wolves hefur fengið varnarmanninn Cameron Borthwick-Jackson á láni frá Manchester United.

Lánssamningurinn gildir út þetta tímabil.

Á síðasta tímbili spilaði hinn 19 ára gamli Borthwick-Jackson tíu leiki með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Wolves hefur einnig fengið kantmanninn Ola John á láni frá Benfica út tímabilið.

Jón Daði Böðvarsson spilar með Wolves en hann hefur slegið í gegn með liðinu í byrjun tímabils.
Athugasemdir
banner
banner
banner