Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. ágúst 2016 15:00
Magnús Már Einarsson
WBA reynir að fá Jay Rodriguez
Mynd: Getty Images
WBA hefur hafið viðræður við Southampton um að fá framherjann Jay Rodriguez á láni.

Rodriguez meiddist mjög illa á hné í apríl árið 2014.

Síðan þá hefur Rodriguez lítið náð að spila en hann er nú kominn af stað á nýjan leik.

Claude Puel, stjóri Southampton, er með Rodriguez í langtíma áætlunum sínum en hann vill að leikmaðurinn fari á lán til að spila meira.

Tony Pulis vill fá Rodriguez á láni til WBA og möguleiki er að gengið verði frá skiptum í vikunni.
Athugasemdir
banner
banner