Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. ágúst 2016 16:12
Magnús Már Einarsson
West Ham á eftir Bony
Mynd: Getty Images
West Ham vill kaupa Wilfried Bony frá Manchester City samkvæmt frétt Sky Sports.

Hinn 27 ára gamli Bony er ekki ofarlega í röðinni hjá Pep Guardiola stjóra Manchester City.

West Ham hefur verið í framherjaleit í allt sumar en félagið hefur meðal annars misst af Michy Batshuayi, Christian Benteke og Carlos Bacca.

Slaven Bilic, stjóri West Ham, vill fá liðsstyrk sem fyrst enda er meiðslalistinn langur hjá honum í augnablikinu.

Andy Carroll, Andre Ayew, Sofiane Feghouli, Dimitri Payet, Manuel Lanzini og Diafra Sakho eru allir frá keppni og Bilic vill bæta við hópinn sem fyrst.
Athugasemdir
banner
banner