Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 22. september 2014 05:55
Alexander Freyr Tamimi
Ísland í dag - Verður Stjarnan Íslandsmeistari?
Stjarnan gæti varið Ísalndsmeistaratitilinn í dag.
Stjarnan gæti varið Ísalndsmeistaratitilinn í dag.
Mynd: Aron Gauti
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild kvenna klukkan 17:15 og eru ansi góðar líkur á að Stjarnan muni hampa Íslandsmeistaratitlinum.

Stjarnan þarf aðeins eitt stig gegn Aftureldingu á heimavelli til að gulltryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í næstu umferð, en þetta yrði jafnframt í fyrsta skiptið sem Stjarnan tekur tvennuna, deild og bikar.

Ef Afturelding tapar leiknum gæti liðið fallið, ef FH tekst að bera sigur úr bítum gegn Selfossi á sama tíma.

Leikir dagsins í Pepsi-deild kvenna:
17:15 Fylkir - Þór/KA
17:15 Stjarnan - Afturelding
17:15 FH - Selfoss
17:15 Breiðablik - ÍA
17:15 Valur - ÍBV
Athugasemdir
banner
banner