Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA var ánægður með sigur á Fylki í baráttunni um þriðja sæti deildarinnar.
Þór/KA er í þriðja sæti eftir sigurinn, stigi á undan Selfyssingum og Fylki, en á erfiðan leik við fallbaráttulið FH í lokaumferðinni.
Þór/KA er í þriðja sæti eftir sigurinn, stigi á undan Selfyssingum og Fylki, en á erfiðan leik við fallbaráttulið FH í lokaumferðinni.
Jóhann vill ekki segja til um hvort hann sé ánægður með tímabilið fyrr en því er lokið, enda skiptir þriðja sætið miklu máli.
,,Ég er gríðarlega ánægður, þetta var mjög sterkur sigur á móti flottu liði, mjög erfiðu liði.
,,Við gáfum engin færi á okkur og heildarlúkkið á þessu var mjög gott þó að fótboltaleikurinn sjálfur verði ekki gefinn út á DVD.
,,Það sem var í boði var að taka þriðja sætið og nú erum við þar og við erum himinlifandi og þá er bara að reyna að skottast til að halda því.
,,FH er lið sem er alltaf bölvuð barátta og mjög erfitt að mæta og ég tala nú ekki um þegar það bætist ofaná að þær eru í botnbaráttu að berjast fyrir lífi sínu.
,,Við reynum að gefa fá færi á okkur og stinga svo inn allavega einu marki."
Athugasemdir