Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. september 2014 23:42
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Gattuso missti sig á fréttamannafundi
Þetta er ekki í fyrsta eða síðasta skipti sem Gattuso talar frá hjartanu.
Þetta er ekki í fyrsta eða síðasta skipti sem Gattuso talar frá hjartanu.
Mynd: Getty Images
Gennaro Ivan Gattuso náði gríðarlega langt á ferli sínum sem leikmaður og var þekktur fyrir að vera algjör baráttuhundur.

Gattuso er búinn að vera að reyna fyrir sér sem þjálfari en það hefur ekki gengið sérlega vel hingað til, hvorki með Sion í Sviss né Palermo á Ítalíu.

Nýlega tók Gattuso við gríska liðinu OFI Crete sem leikur í efstu deild þar í landi og var hann ekki par sáttur með spurningarnar sem hann var að fá á fréttamannafundi.

Hann brást reiðilega við og þó hann hafi eflaust rétt fyrir sér í ýmsu þá er erfitt að taka manninn alvarlega þegar hann talar á ensku.

Gattuso gengur þokkalega vel hjá OFI Crete sem er með sex stig eftir fjóra leiki í upphafi tímabils.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner