Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 22. september 2014 20:25
Karitas Þórarinsdóttir
Óli Guðbjörns: Búið að vera frábært tímabil
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Ólafur Þór Guðbjörnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var brösulegt lengi framan af og þær fengu eitt, tvö góð færi þrátt fyrir að við værum meira með boltann en þær voru skipulagðar og skynsamar. Þetta var erfitt framan af en endaði vel svo við erum mjög sátt," sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með 3-0 sigri á Aftureldingu í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  0 Afturelding

,,Það er mjög gaman að vinna með þennan hóp og það er ástæðan fyrir því að ég fór út í þetta aftur, ég vissi hvaða hópur var á bakvið okkur. Bæði í kringum Stjörnuna og leikmannahópurinn. Þetta er búið að vera frábært tímabil."

Stjarnan á aðeins eftir lokaleikinn gegn ÍA á Akranesi en svo hefst Meistaradeildin í október.

,,Við ákváðum það og allur hópurinn er búinn að vera einbeittur í því að Meistaradeildin hefur ekki verði á dagskrá fyrr en búið er að klára þetta mót. Nú förum við að skoða andstæðingana og velta okkur upp úr því og sjá hvað við gerum."

Stjarnan skoraði ekki fyrsta klukkutímann en Harpa Þorsteinsdóttir fór svo í gang og skoraði þrennu frá 67. mínútu. En hvar geymir hún ON/OFF takkann?

,,Ég veit það ekki, og væri alveg til í að vita hvar hann væri. Hún er búin að spila frábærlega eins og liðið í sumar. Það er alltaf verið að tala um Hörpu, hún er að klára færin en það eru margir að skapa fyrir hana mikið, nema þriðja markið í dag, hún setti það alveg sjálf. Að Öðru leyti frábær hópur."
Athugasemdir
banner
banner
banner