Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur
Loic Ondo, Jose Figura og Phil Saunders hafa allir framlengt samning sinn við BÍ/Bolungarvík um eitt ár en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Loic Ondo er 24 ára varnarmaður sem var að ljúka sínu þriðja tímabili með BÍ/Bolungarvík.
Hann lék árið 2011 fyrst með liðinu en var svo sumarið 2012 hjá Grindavík. Hann kom aftur og lék síðustu tvö tímabil með BÍ/Bolungarvík.
Jose Figura er 21 árs miðjumaður sem kom á miðju tímabili frá Tindastóli. Hann stóð sig með stakri prýði seinni hluta móts og var því áhugi að fá Jose aftur á næsta tímabili.
Phil Saunders er 23 ára markvörður. Hann kom á miðju sumri frá Bandaríkjunum og lét strax til sín taka.
BÍ/Bolungarvík endaði í 10. sæti í 1. deildinni með 25 stig.
Ljóst er að nýr þjálfari mun taka við liðinu fyrir næsta sumar en Jörundur Áki Sveinsson er hættur eftir þrjú ár við stjórnvölinn
Athugasemdir