Ragnar Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir FC Krasnodar sem vann 2-1 útisigur gegn Amkar í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.
Krasnodar er í sjöunda sæti deildarinnar eftir átta leiki en Amkar er í því tólfta.
Wanderson og Joaozinho skoruðu mörkin fyrir Krasnodar en sigurmarkið kom ur vítaspyrnu á 74. mínútu.
Ragnar hefur verið að spila feykilega vel í hjarta varnarinnar hjá Krasnodar.
Athugasemdir