fös 22. september 2017 15:00
Elvar Geir Magnússon
Conte ræddi um Costa, Hazard og fleiri á fréttamannafundi
Antonio Conte.
Antonio Conte.
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Chelsea skella sér til Stoke á morgun en Antonio Conte, stjóri Chelsea, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag. Hér má sjá það helsta sem þar kom fram.

- Allir leikmenn Chelsea eru klárir í slaginn fyrir utan Danny Drinkwater sem er enn í endurhæfingu eftir meiðsli.

- Tiemoue Bakayoko er leikfær. Hann meiddist ekkert þó hann hafi keyrt á tré.

- Conte um Diego Costa sem er að semja við Atletico Madrid: „Við þökkum honum fyrir hans þjónustu fyrir félagið og óskum honum alls hins besta. Ég hef ekki áhuga á að tala meira um þetta mál. Fortíðin er ekki mikilvæg."

- Conte býst við erfiðum leik gegn Stoke og bendir á að liðið hafi unnið Arsenal og gert jafntefli við Manchester United.

- Mun Eden Hazard byrja? „Eden lék mjög vel í deildabikarnum í vikunni. Meiðslin eru að baki og þrír leikir framundan. Hann er kostur fyrir þessa leiki."

- Conte um Kurt Zouma sem er á láni hjá Stoke: „Það er mikilvægt fyrir hann að spila á þessu tímabili eftir erfitt fótbrot. Þetta er mikilvægt tímabil fyrir hann, hann er að spila mjög vel og það er ánægjulegt að sjá hann spila reglulega. Hann er með langan samning við okkur sem segir að við treystum honum. Það var mikilvægt að senda hann á lán."

Þess má geta að Kurt Zouma spilar að sjálfsögðu ekki á morgun gegn félaginu sem á hann. Leikur Stoke og Chelsea verður klukkan 14:00.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner