Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 22. september 2017 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Balotelli og Falcao á skotskónum
Balotelli kann að skora mörk.
Balotelli kann að skora mörk.
Mynd: Getty Images
Markahrókarnir Mario Balotelli og Falcao voru báðir á skotskónum í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Balotelli skoraði af vítapunktinum þegar lið hans, Nice, gerði 2-2 jafntelfi gegn Angers SCO. Nice lenti 2-0 undir, en Balotelli skoraði fyrra mark sinna manna í þessu jafntefli.

Þetta var fjórða mark Balotelli í frönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, en hann kom til Nice fyrir síðasta tímabil.

Á sama tíma og Nice og Angers skildu jöfn vann Mónakó 4-0 útisigur á Lille. Falcao skoraði tvö af mörkum Mónakó í leiknum. Mónakó er eftir sigurinn í kvöld með jafnmörg stig og Paris Saint-Germain, en Parísarliðið spilar gegn Montpellier á morgun.

Nice 2 - 2 Angers SCO
0-1 Mateo Pavlovic ('12)
0-2 Karl Toko Ekambi ('34)
1-2 Mario Balotelli ('36)
2-2 Sjálfsmark ('76)

Lille 0 - 4 Mónakó
0-1 Stefan Jovetic ('24)
0-2 Rachid Ghezzal ('30)
0-3 Falcao ('48)
0-4 Falcao ('73, víti)
Athugasemdir
banner
banner
banner