Southampton og Manchester United eigast við í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Guardian hefur sett saman líkleg byrjunarlið fyrir leikinn.
Virgil van Dijk gæti spilað sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Dýrlingana síðan í janúar. Hann kom inn sem varamaður um síðustu helgi.
Þá lék hann með U23 liði Southampton á mánudag.
Það eru engin ný meiðslavandræði hjá Manchester United.
Marcus Rashford skoruðu í deildabikarsigrinum gegn Burton og eru báðir í líklegu byrjunarliði United.
Marcos Rojo og Paul Pogba eru áfram á meiðslalistanum.
Leikur Southampton og Manchester United verður klukkan 14 á morgun.
Athugasemdir