Jose Mourinho, stjóri Manchester United, segist ekki hafa hugmynd um það hvenær Paul Pogba snýr aftur eftir meiðsli.
Pogba meiddist aftan í læri gegn Basel í síðustu viku og gæti verið frá keppni í allt að sex vikur.
Mourinho var spurður á fréttamannafundi í dag hvenær Pogba snýr aftur. „Ég hef ekki hugmynd," svaraði Portúgalinn.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir aðra leikmenn að spila og ég treysti þeim öllum. Þess vegna ætla ég ekki að gráta og telja niður dagana í að Paul snúi aftur."

Sjá einnig:
Mourinho segir Pogba að skella sér í frí
Athugasemdir