Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   þri 22. október 2013 14:27
Magnús Már Einarsson
Miðasala á Ísland - Króatía hefst í kringum helgina
Þórir Hákonarson.
Þórir Hákonarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, reiknar með að miðasala á leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti á HM hefjist í kringum helgina.

,,Það er gríðarlegur áhugi og mikill spenningur fyrir þessum leikjum sem framundan eru. Það er búið að hringja rosalega mikið og senda fullt af tölvupóstum," sagði Þórir við Fótbolta.net í dag.

,,Við hittum midi.is í morgun og það eru tveir stórir viðburðir að fara í sölu hjá þeim á morgun og á fimmtudag. Þeir ráðlögðu okkur að vera ekki með miðasöluna á sama tíma svo ég reikna ekki með að miðasalan hefjist fyrr en undir helgi eða um helgina."

Króatíska knattspyrnusambandið á rétt á að fá 1000 miða fyrir sína stuðningsmenn og þá eru eftir tæplega 9000 miðar fyrir Íslendinga.

Leikurinn á Laugardalsvelli fer fram föstudagskvöldið 15. nóvember en KSÍ hefur greint frá því að miðaverðið verður það sama og gegn Kýpur fyrr í þessum mánuði.
Slapp
banner
banner