Markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson er genginn í raðir Leiknis en frá þessu greindi heimasíða Breiðholtsliðsins í gær.
Arnar var í herbúðum Leiknis stærstan hluta síðasta sumar á láni frá Fjölni og lék einn leik með liðinu í 1. deildinni, gegn BÍ/Bolungarvík fyrir vestan.
Arnar var í herbúðum Leiknis stærstan hluta síðasta sumar á láni frá Fjölni og lék einn leik með liðinu í 1. deildinni, gegn BÍ/Bolungarvík fyrir vestan.
Arnar er fæddur 1993 og er uppalinn hjá Fjölni en hann kom við sögu í einum leik með liðinu í Pepsi-deildinni á liðnu sumri,
„Leiknismenn eru ánægðir að fá Arnar aftur í raðir félagsins enda drengur góður og topp markvörður sem fellur að leikmannahópi Leiknis einsog flís við rass," segir á Leiknir.com.
Arnar mun veita Eyjólfi Tómassyni, aðalmarkverði Leiknis, samkeppni en Eyjólfur var valinn í úrvalslið ársins í 1. deild þar sem Leiknir endaði í efsta sæti og mun því leika í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn næsta sumar.
Athugasemdir