mið 22. október 2014 15:47
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir.is 
Arnþór Ari til FH eða KR?
Arnþór í viðtali eftir leik á Fjölnisvelli.
Arnþór í viðtali eftir leik á Fjölnisvelli.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Samkvæmt heimildum Vísis fer Arnþór Ari Atlason til FH eða KR.

Arnþór féll með Fram á liðnu tímabili en fyrir ári gekk hann í raðir félagsins frá Þrótti.

Bjarni Guðjónsson er líklega að taka við þjálfun KR og segir sagan að hann vilji taka Arnþór með sér frá Fram en þessi 21 árs sóknarmiðjumaður hefur fundað með FH eins og fram kom í gær.

Ljóst er að hann fer ekki í Víking en hann hefur afþakkað tilboð frá félaginu samkvæmt frétt Vísis.
Athugasemdir
banner
banner
banner