Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. október 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sunnlenska.is 
Guðjón Bjarni og Kristinn Þráinn þjálfa Árborg (Staðfest)
Kristinn Þráinn og Guðjón Bjarni.
Kristinn Þráinn og Guðjón Bjarni.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Knattspyrnufélag Árborgar í 4. deild hefur gengið frá ráðningu á þjálfurum fyrir næsta keppnistímabil en æfingar hófust hjá meistaraflokki félagsins í síðustu viku en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.

Guðjón Bjarni Hálfdánarson mun áfram þjálfa liðið en hann er að hefja sitt fjórða keppnistímabil í brúnni hjá Árborg. Þá hefur Kristinn Þráinn Kristjánsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari í stað Báru Kristbjargar Rúnarsdóttur, sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi þjálfarastarfa. Hún mun þó áfram vera sérlegur ráðgjafi fyrir þjálfarateymið hvað varðar leikskipulag.

Kristinn Þráinn er 23 ára útskrifaður ÍAK einkaþjálfari frá Keili 2013 og hefur starfað sem slíkur síðan þá. Hann hefur mest séð um styrktarþjálfun fyrir íþróttafólk úr ýmsum greinum með góðum árangri. Kristinn stundar nú nám í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík til að auka þekkingu sína og styrkja sig í komandi starfi.

„Ég er fullur eftirvæntingar fyrir því að takast á við þetta verkefni. Eftir að hafa spjallað við Guðjón þjálfara og heyrt að liðið sé tilbúið að taka næsta skref og setja stefnuna upp um deild á næsta tímabili þá var ekki hægt að neita þessu tækifæri. Mín markmið sem aðstoðarþjálfari er að hjálpa leikmönnum að taka sína þjálfun á næsta stig og að liðið verði með sterkasta móti þegar tímabilið hefst,“ sagði Kristinn Þráinn í samtali við sunnlenska.is.

Í tilkynningu frá stjórn Árborgar segir að stjórnin bindi miklar vonir við þjálfarateymið og hlakkar til komandi tímabils þar sem allir íbúar Árborgar muni styðja liðið til frækinna sigra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner