Heimild: mbl.is
Þeir sem dæma í Pepsi-deild karla fá tæplega 2,5 sinnum hærri greiðslur en þeir sem dæma í Pepsi-deild kvenna. Frá þessu er sagt í Morgunblaðinu í dag.
Greiðsla fyrir leik í Pepsi-deild karla er 31.900 kr. en dómarar fá 13.150 kr. fyrir dæmdan leik í Pepsi-deild kvenna. Dómarar fá sömu greiðslu fyrir leik í Pepsi-deild kvenna og í 2. deild karla.
Greiðsla fyrir leik í Pepsi-deild karla er 31.900 kr. en dómarar fá 13.150 kr. fyrir dæmdan leik í Pepsi-deild kvenna. Dómarar fá sömu greiðslu fyrir leik í Pepsi-deild kvenna og í 2. deild karla.
Í svari KSÍ við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að KSÍ flokki leiki í fimm flokka eftir erfiðleikastigi skv. mati dómaranefndar KSÍ og er það í samræmi við flokkun á alþjóðavettvangi. Þá séu launin greidd í samræmi við kjarasamning KSÍ við Félag deildadómara (FD).
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag
Athugasemdir