Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. október 2016 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Táningur tryggði Milan sigur í toppbaráttuleik gegn Juve
Mynd: Getty Images
AC Milan 1 - 0 Juventus
1-0 Manuel Locatelli ('65)

Hinn 18 ára gamli Manuel Locatelli gerði eina mark leiksins er ungt lið AC Milan hafði betur gegn Ítalíumeisturum og toppliði Juventus.

Juve stjórnaði leiknum en bæði lið fengu fín færi og stóðu heimamenn sig einstaklega vel þegar það kom að því að verjast sóknum meistaranna, sem hittu aðeins tveimur skotum af nítján á rammann.

Juve er á toppi deildarinnar með 21 stig eftir 9 umferðir en Milan er aðeins tveimur stigum á eftir. Roma er í þriðja sæti, þremur stigum eftir Milan.

Athugið að það getur tekið stöðutöfluna, sem má sjá hér fyrir neðan, tíma að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner