lau 22. október 2016 21:27
Ívan Guðjón Baldursson
Locatelli: Er ekki búinn að átta mig á þessu
Mynd: Getty Images
Hinn 18 ára gamli Manuel Locatelli byrjaði á miðjunni í kvöld er AC Milan lagði Juventus að velli með einu marki gegn engu.

Locatelli gerði eina mark leiksins með frábæru skoti við vítateigslínuna sem Gianluigi Buffon náði ekki að verja.

„Ég er ekki alveg búinn að átta mig á því hvað ég gerði," sagði Locatelli við Mediaset Premium eftir sigurinn frækna.

„Ég skoraði hjá besta markverði heims og kom okkur tveimur stigum frá toppliðinu. Ég vil tileinka öllum sem hafa standið nálægt mér þetta mark, fjölskyldunni minni og ættingjum, líka þeim sem halda með Juventus. Þá vil ég líka tileinka Silvio Berlusconi markið því það var hann sem vildi fá mig upp í aðalhópinn."

Juve kom knettinum í netið í fyrri hálfleik en ekkert mark dæmt vegna rangstöðu og segist Locatelli ekki vita hvort línuvörðurinn hafi haft rétt fyrir sér eða ekki.

„Ég veit ekki hvort þetta hafi átt að vera mark eða ekki, það er ekki mitt hlutverk að segja til um það. Við unnum bardagann í kvöld en stríðið er langt frá því að vera búið. Við verðum að halda okkur á jörðinni og hugsa um einn leik í einu."
Athugasemdir
banner
banner