Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 22. október 2016 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndbönd: Táningarnir tryggðu Milan sigur gegn Juve
17 ára og þegar orðinn einn af bestu markvörðum Ítalíu.
17 ára og þegar orðinn einn af bestu markvörðum Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Táningarnir Gianluigi Donnarumma og Manuel Locatelli tryggðu AC Milan sigur gegn Juventus í kvöld.

Milan er tveimur stigum frá Ítalíumeisturunum eftir sigurinn en hinn 18 ára gamli Locatelli gerði sigurmarkið með glæsilegu skoti í síðari hálfleik.

Báðir táningarnir voru í byrjunarliðinu, Locatelli á miðjunni og Donnarumma í marki, en Donnarumma bjargaði sigrinum fyrir Milan með stórkostlegri markvörslu á lokasekúndu leiksins.

Sigurmark Locatelli og flautuvörslu Donnarumma er hægt að sjá hér fyrir neðan.







Athugasemdir
banner
banner