Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. október 2016 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Wenger: Cech bjargaði stiginu
Mynd: Getty Images
Arsenal gerði markalaust jafntefli við nýliða Middlesbrough í enska boltanum í dag í leik þar sem bæði lið fengu færi til að krækja í stigin þrjú.

Petr Cech var öruggur í marki Arsenal og varði nokkrum sinnum mjög vel til að bjarga Lundúnarliðinu frá vandræðalegu tapi á heimavelli.

„Þetta var svona leikur þar sem við vorum alltaf með boltann en menn voru þreyttir og við fengum alltof auðveldar skyndisóknir á okkur," sagði Wenger.

„Við gerðum okkur sjálfum erfitt fyrir, vorum 75% með boltann en hefðum getað tapað. Við gáfum allt í þennan leik en leikmenn voru alltof þreyttir, sem betur fer höfðum við vit á að tapa ekki leiknum.

„Þeir fengu góð færi en Petr Cech var mjög góður og bjargaði stiginu fyrir okkur."


Arsenal er á toppi Úrvalsdeildarinnar með 20 stig eftir 9 umferðir. Manchester City er stigi á eftir með leik til góða.

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner