Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. október 2016 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger veit nákvæmlega hvað hann ætlar að segja við Guð
Wenger kann sitt fag
Wenger kann sitt fag
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, veit nákvæmlega hvernig fyrsta samtal sitt við Guð mun fara.

Wenger fagnar 67 ára afmæli sínu í dag, en hann sagði við blaðamenn að hann veit nákvæmlega hvernig fyrsta samtal sitt við manninn fyrir ofan verður.

„Ég sagt það að ef Guð er til og ef ég mun einn daginn fara þangað upp, þá mun hann spyrja mig, 'vilt þú koma hingað inn?'" sagði Wenger.

„Og hann mun spyrja mig, 'hvað hefur þú gert í lífinu?' Eina svarið sem ég hef er 'ég reyndi að vinna fótboltaleiki.'"

„Hann mun klárlega síðan segja, 'er það það eina sem þú hefur gert?' Og eina svarið sem ég hef við því er, 'það er ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera.'"
Athugasemdir
banner
banner