sun 22. október 2017 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Matip: Hugsum ekki um titilbaráttuna
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Joel Matip átti ekki góðan leik þegar Liverpool lék gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hann ræddi við fjölmiðla eftir leikinn sem fór 4-1 fyrir Tottenham.

„Við gáfum þeim tækifæri, það er ekki eins og þeir hafi verið að spila fullkomlega, við gáfum þeim tækifæri. Við verðum að hætta að gera mistök," sagði Matip við Sky Sports.

Matip segir að Liverpool sé ekki að hugsa um titilbaráttuna.

„Við erum ekki að hugsa um titilbaráttuna í augnablikinu, við ætlum að reyna að koma okkur í gott skap fyrir næsta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner