Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. október 2017 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Giovinco kláraði drykkinn og jafnaði
Toronto unnu austurhluta MLS deildarinnar í fyrra.
Toronto unnu austurhluta MLS deildarinnar í fyrra.
Mynd: Getty Images
Sebastian Giovinco hefur undanfarin ár verið besti leikmaður bandarísku MLS deildarinnar.

Viðureign Atlanta United og Toronto FC var að ljúka og gerði Giovinco stórkostlegt jöfnunarmark fyrir kanadísku gestina, sem eru með tólf stiga forystu á toppnum.

Atlanta komst yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Jozy Altidore jafnaði í síðari hálfleik.

Giovinco og Altidore fögnuðu jöfnunarmarkinu saman, eins og má sjá hér fyrir neðan, og kastaði heimamaður glasi í leikmennina.

Giovinco tók glasið af jörðinni, kláraði úr því og henti því af vellinum meðan hann hélt áfram að fagna.

Stundarfjórðungi síðar komust heimamenn aftur yfir, en Giovinco bjargaði stigi fyrir gestina með stórbrotnu aukaspyrnumarki. Brad Guzan átti aldrei möguleika.





Athugasemdir
banner
banner