Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. nóvember 2014 16:33
Arnar Geir Halldórsson
Byrjunarlið Arsenal og Man Utd: Welbeck og Persie byrja
Tekst Persie að skora á Emirates?
Tekst Persie að skora á Emirates?
Mynd: Getty Images
Nú er innan við klukkutími í stórleik Arsenal og Manchester United á Emirates.

Bæði lið eiga í miklum meiðslavandræðum en það er þó enginn skortur á gæðaleikmönnum ef litið er á byrjunarliðin. Louis van Gaal stillir upp áhugaverðri varnarlínu en hugsanlegt er að hann sé aftur að reyna við 5-3-2 leikkerfið en Smalling, Blackett og McNair eru allir í byrjunarliðinu.

Það kemur lítið á óvart í uppstillingu Arsene Wenger en Per Mertesacker og Natxo Monreal mynda miðvarðarparið í þessum leik.

Byrjunarlið Arsenal:Szczesny, Chambers, Mertesacker, Monreal, Gibbs, Ramsey, Arteta, Wilshere, Oxlade-Chamberlain, Welbeck, Sanchez.

Byrjunarlið Man Utd:De Gea, Smalling, McNair, Blackett, Valencia, Carrick, Fellaini, Shaw, Di Maria, Rooney, van Persie.
Athugasemdir
banner
banner