Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. nóvember 2014 21:51
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Aron skoraði sigurmark AZ - Kolbeinn spilaði í sigri Ajax
Aron Jóhannsson skoraði í kvöld
Aron Jóhannsson skoraði í kvöld
Mynd: Getty Images
Tveir Íslendingar voru á ferðinni í hollenska boltanum í dag en Aron Jóhannsson, framherji AZ Alkmaar er kominn af stað.

Aron Jóhannsson skoraði sigurmark AZ Alkmaar í byrjun leiks gegn Vitesse en það reyndist eina mark leiksins.

Framherjinn knái hefur verið frá vegna meiðsla undanfarna mánuði og lítið sem ekkert komið við sögu hjá liðinu en hann opnaði markareikninginn í kvöld.

Kolbeinn Sigþórsson kom þá inná er Ajax kom til baka gegn Heerenveen og vann 4-1 sigur en hann spilaði síðustu tíu mínútur leiksins.
Athugasemdir
banner
banner
banner