Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. nóvember 2014 13:27
Arnar Geir Halldórsson
Ingvar Kale ekki áfram hjá Víkingi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Kale mun ekki spila með Víking í Pepsi-deildinni næsta sumar en þetta tilkynnti hann á Facebook síðu sinni nú rétt í þessu.

Ingvar er uppalinn hjá Víkingi en hann kom til liðsins aftur fyrir tveim árum eftir nokkur ár hjá Breiðablik en hann varði einmitt mark Kópavogsliðsins þegar þeir urðu Íslandsmeistarar. Ingvar segir að samningar hafi ekki náðst en kveður hann Víking í góðu.

Óvíst er því hvar Ingvar mun spila næsta sumar en sögusagnir hafa verið um að hann leysi nafna sinn Jónsson af hjá Stjörnunni fari hann í atvinnumennsku.

Víkingar hafa verið með danskan markmann á reynslu en ekki er ljóst hvort samið verði við hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner