Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. nóvember 2014 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Pogba með tvö í sigri Juventus - Roma lagði Atalanta
Paul Pogba skoraði tvö fyrir Juventus
Paul Pogba skoraði tvö fyrir Juventus
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ítölsku deildinni en bæði Juventus og Roma unnu sína leiki. Paul Pogba skoraði tvö fyrir ítalska meistaraliðið.

Roma lagði Atalanta með tveimur mörkum gegn einu. Maxi Moralez kom Atalanta yfir á fyrstu mínútu leiksins áður en Adem Ljajic jafnaði metin tuttugu mínútum síðar.

Radja Nainggolan skoraði sigurmark Roma undir lok fyrri hálfleiks og á sama tíma fór Juventus létt með Lazioa.

Paul Pogba kom Juventus yfir á 25. mínútu áður en Carlos Tevez bætti við marki í byrjun síðari hálfleiks.

Pogba skoraði svo þriðja mark Juventus þegar um það bil hálftími var eftir og þægilegur sigur Juventus í höfn.

Úrslit og markaskorarar:

Atalanta 1 - 2 Roma
1-0 Maxi Moralez ('1 )
1-1 Adem Ljajic ('23 )
1-2 Radja Nainggolan ('42 )


Rautt spjald:Richmond Boakye, Atalanta ('90)
Lazio 0 - 3 Juventus
0-1 Paul Pogba ('25 )
0-2 Carlos Tevez ('55 )
0-3 Paul Pogba ('64 )
Athugasemdir
banner
banner
banner