Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 22. nóvember 2014 13:00
Alexander Freyr Tamimi
Laurent Blanc hefur áhyggjur af varnarleik PSG
Blanc hefur smá áhyggjur af varnarleik sinna manna.
Blanc hefur smá áhyggjur af varnarleik sinna manna.
Mynd: Getty Images
Laurent Blanc, þjálfari Paris Saint-Germain, viðurkenndi eftir 3-2 sigur sinna manna gegn Metz í frönsku deildinni í gær að hann væri ekkert allt of ánægður með varnarleik liðsins

PSG komst í 2-0 snemma leiks en tvö víti frá Mobido Maiga gerðu Metz kleift að jafna metin, áður en Ezequiel Lavezzi tryggði PSG sigurinn í restina.

Zlatan Ibrahimovic hefur jafnað sig af meiðslum og spilaði með í leiknum.

,,Í fyrri hálfleik stjórnuðum við þessu og við skoruðum tvö mörk,” sagði Blanc við beIN Sports.

,,Við hefðum ekki búist við því að fá á okkur víti á 47. mínútu og annað örskömmu sienna. Við þurftum að byrja allt upp á nýtt en við gerðum vel að vinna.”

,,Við skoruðum þrjú mörk en ég er sorgmæddur yfir því að við höfum fengið á okkur tvö.”

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner