Aron Jóhannsson, leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, er kominn af stað í hollensku deildinni en hann er búinn að skora eina mark liðsins gegn Vitesse.
Staðan er 1-0 þegar um það bil fimmtán mínútur eru eftir en Aron skoraði markið á fjórtándu mínútu leiksins með skalla.
Þetta var fyrsta mark hans á tímabilinu en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Hann fór í aðgerð í ágúst og hefur ekkert getað spilað en hann er nú búinn að opna markareikninginn.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Athugasemdir