,,Við vorum heppnir nokkrum sinnum í leiknum en markvörðurinn okkar var líka magnaður," sagði Wayne Rooney, leikmaður Manchester United á Englandi, eftir 1-2 sigur liðsins á Arsenal í kvöld.
Rooney skoraði síðara mark Manchester United í leiknum en Kieran Gibbs átti fyrra markið er hann gerði sjálfsmark.
Olivier Giroud minnkaði muninn í uppbótartíma en lengra komust heimamenn ekki. Rooney var ánægður með frammistöðuna.
,,Við vorum brothættir þegar þeir sóttu á okkur en við náðum að skora tvö góð mörk og þannig var leikurinn lagður upp," sagði Rooney.
,,Paddy McNair og Tyler Blackett voru mjög flottir. Þetta gefur okkur trú og sjálfstraust og kemur á góðum tíma fyrir okkur," sagði hann að lokum.
Athugasemdir