Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. nóvember 2014 13:15
Arnar Geir Halldórsson
Thierry Henry til varnar Wenger
Félagar
Félagar
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin Thierry Henry hefur komið landa sínum og fyrrum læriföður, Arsene Wenger, til varnar og minnir stuðningsmenn liðsins á það hvernig Wenger breytti félaginu.

Wenger hefur á seinni árum orðið umdeildur meðal stuðningsmanna Arsenal en titlunum hefur farið ört fækkandi eftir mikla sigurgöngu á fyrstu árum Wenger.

,,Hjá Arsenal er gerð krafa á sigur, það var mér kennt. Í mínum huga er það ekki spurning að Wenger breytti Arsenal. Þeir voru sigursælir áður en hann kom en á annan hátt. Núna er Arsenal þekkt fyrir fallegan fótbolta. Það er Wenger að þakka." sagði Henry.

Arsenal situr í 6.sæti deildarinnar en liðið mætir Manchester United í stórleik dagsins klukkan 17:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner