Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 22. nóvember 2017 10:43
Elvar Geir Magnússon
Kína tapaði 3-0 í fyrsta leik Sigga Ragga
Sigurður Ragnar á hliðarlínunni.
Sigurður Ragnar á hliðarlínunni.
Mynd: Getty Images
Sigurður Ragnar Eyjólfsson fékk ekki óskabyrjun sem þjálfari kínverska kvennalandsliðsins.

3-0 tap var niðurstaðan í fyrsta leik en um var að ræða vináttulandsleik gegn Ástralíu fyrir framan ellefu þúsund áhorfendur í Melbourne.

Liðin mætast í öðrum vináttulandsleik um helgina.

Sam Kerr skoraði tvö mörk fyrir Ástralíu en annað þeirra var stórglæsilegt og má sjá það hér að neðan.

Halldór Björnsson og Dean Martin eru aðstoðarmenn Sigga Ragga hjá kínverska landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner