Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. nóvember 2017 15:17
Elvar Geir Magnússon
Spænskur markvörður til reynslu hjá Selfossi
Selfyssingar eru í markmannsleit.
Selfyssingar eru í markmannsleit.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Spænskur markvörður, Angel Díez, er hjá Selfyssingum til reynslu og spilar hann æfingaleik með liðinu í kvöld.

Selfoss mætir Leikni Reykjavík í Egilshöllinni í kvöld 18:30.

Díez er 26 ára gamall og hefur leikið í neðri deildum Spánar og í Kýpur.

Guðjón Orri Sigurjónsson varði mark Selfyssinga í sumar en hann er genginn í raðir Stjörnunnar að nýju.

Liðið tímabil var vonbrigði fyrir Selfoss en liðið endaði í 8. sæti Inkasso-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner