Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
England: Chelsea með þriggja stiga forystu eftir sigur
Fabregas átti mark og stoðsendingu gegn Stoke City.
Fabregas átti mark og stoðsendingu gegn Stoke City.
Mynd: Getty Images
Stoke City 0 - 2 Chelsea
0-1 John Terry ('2)
0-2 Cesc Fabregas ('78)

Stoke City fékk topplið Chelsea í heimsókn í lokaleik 17. umferðar ensku Úrvalsdeildarinnar.

John Terry kom Chelsea yfir snemma í leiknum eftir hornspyrnu Cesc Fabregas.

Meira var ekki skorað í rólegum fyrri hálfleik en bæði lið fengu færi í síðari hálfleik.

Fabregas tryggði sigur Chelsea á 78. mínútu þegar Eden Hazard gerði vel að koma boltanum á Spánverjanum sem rétt kom boltanum í netið.

Chelsea er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Stoke er í 13. sæti, fjórum stigum frá fallsvæði.
Athugasemdir
banner
banner
banner