Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Freddy Adu rekinn frá félagi í Serbíu
Freddy Adu.
Freddy Adu.
Mynd: Getty Images
Ferill Freddy Adu heldur áfram að taka dýfu niður á við en hann hefur verið rekinn frá serbneska félaginu FK Jagodina.

Hinn 25 ára gamli Adu var á sínum tíma talinn vera einn allra efnilegasti leikmaður í heimi en hann er bæði yngsti leikmaðurinn og yngsti markaskorarinn í sögu MLS deildarinnar í Bandaríkjunum.

Undanfarin ár hefur Adu flakkað á milli félaga og lítið sem ekkert fengið að spila.

Í sumar samdi hann við Jagodina en eftir hálft ár í herbúðum félagsins án þess að spila leik hefur samningi hans verið rift.

Adu hefur einungis leikið 59 mínútur undanfarin tvö ár en þær mínútur voru í búningi Bahia í Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner