Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Hull kallar leikmenn til baka úr láni
Tom Ince samdi við Hull í sumar.
Tom Ince samdi við Hull í sumar.
Mynd: Getty Images
Hull hefur ákveðið að kalla Tom Ince og Maynor Figueroa til baka úr láni.

Ince hefur verið í láni hjá Nottingham Forest síðan í lok október en Figueroa hefur verið í láni hjá Wigan.

Hull tapaði 1-0 gegn Swansea um helgina og liðið er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Steve Bruce hefur því ákveðið að fríska upp á hópinn með því að kalla Ince og Figueroa til baka.

Þeir verða báðir löglegir þegar Hull heimsækir Sunderland á föstudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner