Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. desember 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Inter hefur áhuga á Lucas
Mynd: Getty Images
Inter hefur áhuga á Lucas Leiva miðjumanni Liverpool en þetta staðfesti Roberto Mancini þjálfari liðsins.

,,Lucas er frábær leikmaður en hann er leikmaður Liverpool og það verður erfitt að krækja í hann," sagði Mancini.

,,Það væri klárlega gott fyrir okkur að fá hann til að hjálpa ungu leikmönnunum okkar að vaxa."

Inter hefur hins vegar ekki áhuga á að fá Aaron Lennon kantmann Tottenham eins og orðrómur hefur verið um.

,,Við höfum ekki áhuga á honum. Hann er ekki sá leikmaður sem við erum að leita að," sagði Piero Ausilio yfirmaður íþróttamála hjá Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner