Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 18:30
Magnús Már Einarsson
Kane vill tryggja að Tottenham endi ofar en Arsenal
Harry Kane fagnar marki.
Harry Kane fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Harry Kane hefur komð sterkur inn í lið Tottenham undanfarnar vikur en þessi 21 árs gamli framherji er kominn með 14 mörk á tímabilinu.

Kane segir að aðalmarkmið sitt sé að tryggja að Tottenham endi ofar en nágrannarnir Arsenal í deildinni en það hefur ekki gerst síðan árið 1995.

,,Ég veit hvað það myndi gera mikið fyrir alla í kringum félagið ef við myndum enda fyrir ofan Arsenal," sagði Kane.

,,Ég man ekki hvenær Spurs endaði fyrir ofan Arsenal síðast ef ég á að vera hreinskilinn. Það er langt síðan og ég mun reyna að breyta þessu á þessu tímabili."

,,Það gerir mikið fyrir mig þegar stuðningsmennirnir syngja um mig. Ég var einu sinni stuðningsmaður sem söng um Teddy Sheringham og Robbie Keane. Þetta hjálpar til því að þú vilt gera þitt besta fyrir stuðningsmennina."

Athugasemdir
banner
banner
banner