Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. desember 2014 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
Rafa Benitez: Einn besti leikur sem ég hef upplifað
Mynd: Getty Images
Rafa Benitez var himinlifandi með sigur Napoli gegn Juventus í ítalska Ofurbikarnum í kvöld.

Benitez sagði leikinn hafa verið einn sá besta sem hann hefur upplifað en Juve komst tvisvar yfir í leiknum áður en þurfti að blása til framlengingar og vítaspyrnukeppni.

Í vítaspyrnukeppninni þurfti 18 vítaspyrnur til að útkljá leikinn og er þetta 12. titill sem Rafa vinnur á ferlinum.

,,Þetta er einn besti leikur sem ég hef upplifað, að vinna gegn liði eins og Juventus er merkilegt," sagði Benitez við Rai Sport í Doha.

,,Við tileinkum stuðningsmönnum Napoli þennan sigur, hvort sem þeir komu með okkur til Katar eða horfðu á okkur í sjónvarpinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner