Shane Long, framherji Southampton, hefur skotið til baka á þá sem hafa gagnrýnt liðið að undanförnu.
Southampton sigraði Everton örugglega 3-0 um helgina eftir að hafa áður tapað fimm leikjum í röð.
Eftir góða byrjun á tímabilinu töluðu margir um að Southampton blaðran væri sprungin eftir töpin fimm en Long segir að svo sé alls ekki.

,,Ég held að fólk hafi ekki hugmynd um hvað það er að segja," sagði Long.
,,Ef fólk hefði mætt á leikina og séð okkur spila þá væri það ánægt með frammistöðuna:"
Athugasemdir