Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 22. desember 2014 15:43
Magnús Már Einarsson
Sjö hefti notuð í höfuðmeiðsli Skrtel
Mynd: Instagram
Martin Skrtel, varnarmaður Liverpool, varð fyrir höfuðmeiðslum í 2-2 jafnteflinu gegn Arsenal í gær.

Skrtel fékk gat á hausinn í byrjun síðari hálfleiks þegar Olivier Giroud lenti með takkana á honum.

Skrtel fékk meðhöndlun á vellinum en sjö hefti voru notuð til að loka gatinu.

Níu mínútum var bætt við leiktímann eftir töf vegna meiðsla Skrtel og þegar sex mínútur voru liðnar af þeim tíma náði Slóvakinn að skora með skalla og jafna 2-2.

,,Vonsvikinn með úrslitin en ánægður með að skora í lokin og hjálpa liðinu að ná að minnsta kosti í stig," sagði Skrtel á Instagram síðu sinni eftir leik og birti myndina hér til hliðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner