Maccabi Haifa í Ísrael hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Hólmar Örn Eyjólfsson í sínar raðir frá norsku meisturunum í Rosenborg. Fjölmiðlar í Ísrael greina frá þessu.
Hólmar stóðst læknisskoðun hjá Maccabi Haifa í morgun og hann hefur nú samið við félagið.
Hólmar stóðst læknisskoðun hjá Maccabi Haifa í morgun og hann hefur nú samið við félagið.
Maccabi Haifa er eitt stærsta félagið í Ísrael en það hefur meðal annars farið tvívegis í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liðið leikur á 30 þúsund manna leikvangi og fær flesta áhorfendur að meðaltali á leiki í Ísrael. Innan vallar hefur Maccabi þó verið í lægð undanfarin ár en liðið varð síðast meistari árið 2013.
Maccabi er sem stendur í 3. sæti í úrvalsdeildinni í Ísrael. Hapoel Beer Sheva er efsta sæti deildarinnar og Viðar Örn Kjartansson og félagar í Maccabi Tel Aviv eru í 2. sæti.
Hinn 26 ára gamli Hólmar varð meistari með Rosenborg í ár og í fyrra en hann kom til félagsins frá Bochum í Þýskalandi sumarið 2014.
Undir lok félagaskiptagluggans í ágúst var spænska félagið Real Betis að reyna að krækja í Hólmar en ekkert varð af þeim félagaskiptum.
Hólmar Örn hefur verið í síðustu landsliðshópum Íslands en hann var ekki í hópnum sem fór á EM í sumar.




