Chelsea er að færast nær því að kaupa Edin Dzeko og Emerson Palmieri frá Roma samkvæmt frétt Sky í dag.
Roma vill fá 45 milljónir punda samanlagt fyrir leikmennina og viðræður félaganna ganga vel.
Roma vill fá 45 milljónir punda samanlagt fyrir leikmennina og viðræður félaganna ganga vel.
Fjölmargir hávaxnir framherjar hafa verið orðaðir við Chelsea í mánuðinum og nú virðist Dzeko vera á leið til félagsins.
Hinn 31 árs gamli Dzeko spilaði með Manchester City frá 2011 til 2016 og þekkir vel til í enska boltanum.
Palmieri er 23 ára gamall vinstri bakvörður en hann er frá Brasilíu.
Athugasemdir