Mexíkóski framherjinn Javier Hernandez er tilbúinn að yfirgefa herbúðir West Ham einunngis hálfu ári eftir að hann kom til félagsins.
Chicharito hefur ekki náð að festa sig í sessi liði West Ham en hann skoraði þó jöfnunarmark liðsins gegn Bournemouth um helgina.
Chicharito hefur ekki náð að festa sig í sessi liði West Ham en hann skoraði þó jöfnunarmark liðsins gegn Bournemouth um helgina.
Chicharito hefur einungis byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni síðan David Moyes tók við Hömrunum í nóvember og hann vill fá að spila meira.
„Það eru nokkur félög sem hafa áhuga á honum. Hann er leikmaður sem allir þekkja og hann er mjög fagmannlegur," sagði Eduardo Hernandez umboðsmaður Chicharito.
„Aðalmarkmið okkar er að finna félag þar sem hann fær að spila eins marga leiki og mögulegt er."
„Það er mikilvægast og Javier hefur persónulega beðið um það."
Óvíst er hvort að Hernandez verði að ósk sinni að fá að fara frá West Ham í þessum mánuði þar sem Andy Carroll verður frá keppni næstu þrjá mánuðina vegna meiðsla auk þess sem Manuel Lanzini verður frá í sex vikur eftir að hafa meiðst um síðustu helgi.
Hinn 29 ára gamli Chicharito kom til West Ham frá Bayer Leverkusen síðastliðið sumar en hann hefur áður leikið með félögum eins og Manchester United og Real Madrid.
Athugasemdir