Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, missti af lokamínútunum í 7-1 sigri liðsins á Deportivo La Coruna í fyrrakvöld eftir að hafa farið blóðugur af velli.
Ronaldo skoraði fimmta og sjötta mark Real í leiknum. Síðara mark hans kom með skalla en þegar Ronaldo skoraði sparkaði Fabian Schar varnarmaður Deportivo óvart í höfuð hans.
Ronaldo fékk ljótan skurð eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan. Ronldo var heppinn að meiðast ekki á auga en skurðurinn er rétt hjá auga hans. Myndbandið er tekið í búningsklefa Real Madrid eftir leikinn á sunnudag.
Ekki hefur verið gefið út hvort Ronaldo verði eitthvað frá keppni vegna meiðslanna en Real mætir Leganes í spænska bikarnum á morgun áður en liðið leikur gegn Valencia í spænsku deildinni á laugardaginn.
Sjá einnig:
Ronaldo allur út í blóði - Notaði síma til að sjá sig

📺👀 #RMLiga
— Real Madrid C.F.🇬🇧 (@realmadriden) January 22, 2018
Watch how @Cristiano was treated after his injury against Deportivo. pic.twitter.com/xWy24Eaehi
Athugasemdir