David Ngog, fyrrum leikmaður Liverpool, hefur samið við Ross County sem er í botnsætinu í skosku úrvalsdeildinni.
Hinn 28 ára gamli Ngog var án félags eftir að hafa farið frá Panionios í Grikklandi.
Owen Coyle, stjóri Ross County, þekkir Ngog síðan Frakkinn lék undir hans stjórn hjá Bolton.
Hinn 28 ára gamli Ngog var án félags eftir að hafa farið frá Panionios í Grikklandi.
Owen Coyle, stjóri Ross County, þekkir Ngog síðan Frakkinn lék undir hans stjórn hjá Bolton.
Ngog hefur æft með Ross County undanfarna daga og nú hefur hann samið við félagið.
Ngog var á mála hjá Liverpool frá 2008 til 2011 en hann skoraði níu mörk í 69 deildarleikjum með félaginu.
Athugasemdir